Fyrirhuguð lagasetning fjármálaráðherra um gjaldþrot eða sambærileg skuldaskil ÍL-sjóðs fer í bága við stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta er meðal þess sem efnislega kemur fram í lögfræðiáliti LOGOS sem unnið var fyrir íslenska lífeyrissjóði og kynnt var á fundi þeirra fyrr í dag.
Flestir lífeyrissjóðir landsins hafa, í ljósi mikilla hagsmuna íslenskra sjóðfélaga, myndað sameiginlegan vettvang vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að hækka breytilega vexti sjóðfélagalána um 20 punkta frá og með 12. desember næstkomandi. Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána verða eftir hækkunina 6,90% og viðbótarlána 7,65% Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána verða 2,00% og viðbótarlána 2,75%.
Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga um málefni ÍL-sjóðs vill Gildi koma eftirfarandi á framfæri. Markaðsvirði eigna Gildis í skuldabréfum ÍL-sjóðs nam fyrir tilkynningu fjármála- og efnahagsráðherra um mögulegt uppgjör sjóðsins um 109 milljörðum króna. Verðlækkun skuldabréfa Gildis frá þeim tíma nemur nú um 14,7 milljörðum króna
Alþingi samþykkti í vor breytingar á lögum um lífeyrissjóði sem taka gildi um næstu áramót. Hér má finna upplýsingar um helstu breytingar sem finna má í hinum nýju lögum.
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka breytilega vexti sjóðfélagalána frá og með 24. október næstkomandi. Breytilegir vextir óverðtryggðra lána hækka þá um 50 punkta en breytilegir vextir verðtryggðra lána hækka um 20 punkta.
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sjóðfélagalána um 85 punkta. Eftir hækkunina verða vextir óverðtryggðra grunnlána 6,20% og óverðtryggð viðbótarlán munu bera 6,95% vexti.
Skrifstofur Gildis verða lokaðar föstudaginn 27. maí og mánudaginn 30. maí. Skrifstofur sjóðsins opna á hefðbundnum tíma þriðjudaginn 31. maí.
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sjóðfélagalána um 85 punkta. Hækkunin mun taka gildi 5. júlí.
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs 2022 verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl klukkan 17:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Hrein nafnávöxtun Gildis-lífeyrissjóðs árið 2021 nam 17,8% sem þýðir að hrein raunávöxtun nam 12,4% samkvæmt ársuppgjöri sjóðsins sem nú liggur fyrir.
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl klukkan 17:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Stjórn Gildis hefur ákveðið að lækka verðtryggða vexti sjóðsins en hækka óverðtryggða vexti.
Breytilegir verðtryggðir vextir lækka um 10 punkta og verða vextir gunnlána þá 1,60% og viðbótarlána 2,35%. Fastir verðtryggðir vextir lækka um 20 punkta og verða vextir grunnlána þá 2,80% og viðbótarlána 3,55%. Breytingarnar taka gildi 5. mars næstkomandi.
Skrifstofur Gildis loka klukkan tvö fimmtudaginn 17. febrúar vegna námskeiðs starfsfólks.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að hækka óverðtryggða breytilega vexti sjóðfélagalána um tuttugu og fimm punkta og tekur hækkunin gildi mánudaginn 17. janúar. Vextir óverðtryggðra grunnlána verða eftir breytinguna 4,05% og viðbótarlána 4,80%.