12. júní 2025

Fyrirliggjandi frumvarp leiðir óhjákvæmilega til skerðingar á ellilífeyri

Gildi-lífeyrissjóður hefur sent Alþingi umsögn vegna fyrirliggjandi frumvarps um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er varðar víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna.

Í umsögninni kemur fram að verði frumvarpið að lögum muni það leiða til verulegrar aukningar á greiðslum sjóðsins vegna örorkulífeyris til framtíðar. Þessir fjármunir verða ekki úr lausu lofti gripnir og er eina leið sjóðsins til þess að fjármagna slíkar auknar örorkugreiðslur að skerða ellilífeyri. Frumvarpið felur þannig í sér inngrip í eignarréttindi sjóðfélaga.

Bent er á það í umsögninni að frumvarpið muni að óbreyttu leiða til þess að fremur stór hópur muni verða með hærri tekjur á örorkulífeyri en hann var með áður á vinnumarkaði.

Leiði breytingarnar til fjölgunar örorkulífeyrisþega mun það auka kostnað sjóðsins enn meira, sem myndi leiða til enn frekari skerðingar á ellilífeyrisgreiðslum. Samkvæmt áætlun sjóðsins og tryggingastærðfræðings hans gætu neikvæð áhrif á getu sjóðsins til greiðslu á ellilífeyri í framtíðinni numið á bilinu allt að 4,8 til 6,7%.

Að mati sjóðsins er þörf á frekari greiningum og mati á áhrifum frumvarpsins á hagsmuni sjóðfélaga einstakra lífeyrissjóða. Ef vilji stjórnvalda er til breytinga þarf á sama tíma að leggja til viðeigandi mótvægisaðgerðir eða annars konar kerfisbreytingar sem tryggja að einstakir sjóðir og sjóðfélagar þeirra verði ekki fyrir neikvæðum fjárhagslegum afleiðingum.

Umsögn sjóðsins í heild sinni má nálgast hér.