Aðalfundur Sýnar hf. 2023


Aðalfundur Sýnar hf. fór fram föstudaginn 17. mars klukkan 10:00 í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík. Fundurinn var einnig rafrænn.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári Stjórn Til kynningar
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um hvernig skuli fara með afkomu félagsins á reikningsárinu 2022 Stjórn Samþykkt
Tillaga um lækkun hlutafjár með innlausn (ógildingu) eigin hluta félagsins í framhaldi af kaupum á eigin hlutum. Stjórn Samþykkt
Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins og um heimild til kaupa á eigin hlutum (sem getið verður í viðauka við samþykktirnar):
i) Breytingar á fyrirkomulagi boðunar aðal- og hluthafafunda Stjórn/Gildi Samþykkt**
ii) Að heimila félaginu kaup á eigin hlutum, sem verður viðauki við samþykktirnar Stjórn Samþykkt
Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta Stjórn Samþykkt
Tillaga um starfskjarastefnu félagsins Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir komandi starfsár Stjórn Samþykkt
Kosning stjórnar félagsins Sjálfkjörið
Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd félagsins í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar Sjálfkjörið
Kosning endurskoðenda félagsins Stjórn Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Gildis á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.

**Breytingartillaga Gildis borin upp samhliða tillögu stjórnar og mælt með að kosið sé um hana breytta á þann hátt, sem enginn mótmælti. Samþykkt eins og Gildi lagði upp.