Séreignarsparnaður hjá Gildi

Eign - fyrir þína framtíð (3)


Séreignarsparnaður er frábær leið til að spara sem styður við þig í gegn um allt lífið. Þú getur m.a. nýtt sparnaðinn til íbúðakaupa, til að greiða niður íbúðalán og til að hafa það betra eftir að þú nærð 60 ára aldri.

Séreign (8)


Sparnadur sem vex strax

Sparnaður sem vex strax

Þú getur lagt allt að 4% af heildarlaununum þínum í séreignarsparnað. Þú greiðir engan skatt af framlaginu þegar þú leggur það inn og vinnuveitandinn greiðir á móti jafnháa upphæð, sem jafngildir launahækkun allt að 2%.

Þannig má segja að sparnaðurinn meira en tvöfaldist strax, ef við miðum við algengustu leiðina, að þú greiðir 4% af laununum þínum og vinnuveitandinn 2%.


Þín leið til að eignast íbúð

Ein leið til að nýta séreignarsparnað er að nýta hann til kaupa íbúð. Það er bara hægt að nýta þessa leið þegar þú kaupir fyrstu íbúðina þína eða ef þú hefur ekki átt íbúð síðustu 5 ár. Þú mátt nýta alla upphæðina skattfrjálst sem þú hefur sparað inn á útborgun á íbúðinni.

Þegar þú hefur eignast íbúð geturðu svo notað greiðslur í séreignarsparnað til að lækka íbúðalánið þitt skattfrjálst. Þannig eignastu íbúðina hraðar og greiðslubyrðin lækkar með tímanum.


Oryggisnet fyrir thig og thina

Öryggisnet fyrir þig og þína

Séreignarsparnaður er ólíkur venjulegum lífeyrissparnaði að því leyti að hann er allur þín persónulega eign og erfist ef þú deyrð. Hann getur því verið mikilvægt öryggisnet fyrir þína nánustu ef eitthvað kemur fyrir.

Séreignarsparnaður er líka tryggari en flestar eignir því ekki er hægt að ganga að honum ef þú lendir í greiðsluvandræðum eða ferð í gegn um gjaldþrot.


Inneign sem vex

Sparnaðurinn ávaxtast svo með tímanum líkt og annar sparnaður, í takt við ávöxtunarleiðina sem þú hefur valið, og hækkar með tímanum framlagið þitt enn meira. Séreignarsparnaður er líka öðruvísi en annar sparnaður því þú greiðir engan fjármagnstekjuskatt af ávöxtuninni.

Hversu mikið þú sparar fer eftir því hversu há launin þín eru og hversu hátt hlutfall af laununum þú greiðir í sparnað. Hér fyrir neðan má t.d. sjá sparnað á fimm árum m.v. 670 þúsund króna laun, 4% framlag og 2% framlag vinnuveitanda. Við miðum við x,x% ávöxtun á ári, sem er meðalávöxtun síðustu 10 ára.

Inneign sem vex


Veldu fjárfestingarleið sem hentar þér

Það er persónubundið hvernig fólk hugsar um sparnaðinn sinn og þess vegna skiptir máli að geta valið á milli góðra kosta sem henta ólíkum markmiðum. Í Eign hefurðu val um leiðir sem henta ólíkum markmiðum. Til dæmis geta meiri áhætta og sveiflur í eignasafninu hentað þeim sem vilja góða ávöxtun til langs tíma. Öruggari kostir sem eru ólíklegir til að sveiflast mikið geta hentað þeim sem ætla að nota sparnaðinn fljótlega, t.d. í íbúðarkaup. Í Eign er líka hægt að velja leið sem aðlagar áhættu með aldrinum og hversu langt er í eftirlaunaaldur og svo leið þar sem fjárfest er í erlendum eignum og gert er upp í Evrum.

Við mælum með því að þú kynnir þér leiðirnar vel og komir til okkar í ráðgjöf ef þú hefur spurningar sem við svörum ekki hér.