Eign - Verðtryggð

Í Eign - Verðtryggð eru allar eignir ávaxtaðar í verðtryggðum innlánum.

Leiðin hentar einkum þeim sem vilja trygga ávöxtun yfir styttri tíma.

Vakin er athygli á ávöxtunarleiðin hét áður Framtíðarsýn3 en nafninu var breytt í Eign - Verðtryggð um mitt ár 2026.

Ávöxtun

Þegar séreign er ávöxtuð í jafnvel áratugi, þarf að horfa sérstaklega vel á ávöxtun yfir lengra tímabil. Þar þarf einnig að hafa í huga mun á raunávöxtun og nafnávöxtun.

Nafnávöxtun sýnir hversu mikið eign hefur vaxið í krónum án tillits til verðbólgu eða kostnaðar. Raunávöxtun er nafnávöxtun þegar búið er að leiðrétta fyrir verðbólgu og kostnaði. Hún sýnir þá hækkun á raunvirði.

Hrein raun- og nafnávöxtun

Hér má sjá hreina nafn- og raunávöxtun Eignar - Verðtryggðrar árið 2025 en einnig 5 og 10 ára meðaltal.

Munur á raun- og nafnávöxtun (dæmi):

Þú átt 100.000 krónur og leggur inn á bankabók með 10% vöxtum. Eftir ár áttu 110.000 krónur. Nafnávöxtun er því 10.000 krónur.

Á þessu ári var verðbólga 5% sem dregst frá nafnávöxtuninni. Formúlan til að reikna hana út er nafnávöxtun deilt með verðbólgu - sem gefur í þessu tilfelli 4,76. Það þýðir að 100.000 krónurnar hafa vaxtið í verðmæti um 4,76% eða um 4.760 krónur.

Gengi

Einföld leið til að átta sig á ávöxtun eignasafns í Eign - Verðtryggð er að skoða gengisþróun síðustu ára. Gengi fjárfestingarleiðarinnar (áður Framtíðarsýn 3) hefur þróast með eftirfarandi hætti frá árinu 1999.


Fjárfestingastefna

Í Eign - Verðtryggð er allur sparnaður ávaxtaður í verðtryggðum innlánum. Fjárfestingarstefna leiðarinnar tekur mið af því og er þar að leiðandi afar einföld.

Verðbréfaflokkur Eignir 31.12.2025 Stefna 2026 Heimilað frávik - lágmark Heimilað frávik - hámark
Verðtryggð innlán 100% 100% 100% 100%
Samtals 100% 100%


Lykilupplýsingar

Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign - Verðtryggð hjá Gildi-lífeyrissjóði. Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.