Eign - 50/50

Fjárfestingarleið sem meðal annars er hugsuð fyrir yngri einstaklinga sem eru að hefja söfnun séreignarsparnaðar sem og fólk á miðjum aldri.

Í Eign 50/50 eru 50% safnsins að jafnaði í hlutabréfum og 50% í skuldabréfum.

Áhersla á hlutabréf þýðir að leiðin hentar þeim sem hyggjast ávaxta yfir langan tíma (áratugi) án þess að taka of mikla áhættu.

Vakin er athygli á ávöxtunarleiðin hét áður Framtíðarsýn 1 en nafninu var breytt um mitt ár 2026. Um leið var fjárfestingarstefnu leiðarinnar breytt þannig að hlutfall hlutabréfa hækkaði úr 35% í 50% og hlutfall skuldabréfa lækkaði úr 65% í 50%.

Ávöxtun

Þegar séreign er ávöxtuð í jafnvel áratugi, þarf að horfa sérstaklega vel á ávöxtun yfir lengra tímabil. Þar þarf einnig að hafa í huga mun á raunávöxtun og nafnávöxtun.

Nafnávöxtun sýnir hversu mikið eign hefur vaxið í krónum án tillits til verðbólgu eða kostnaðar. Raunávöxtun er nafnávöxtun þegar búið er að leiðrétta fyrir verðbólgu og kostnaði. Hún sýnir þá hækkun á raunvirði.

Nafnávöxtun



Hrein raun- og nafnávöxtun

Hér má sjá hreina nafn- og raunávöxtun Eignar - 50/50 árið 2024 en einnig 5 og 10 ára meðaltal.

Munur á raun- og nafnávöxtun (dæmi):

Þú átt 100.000 krónur og leggur inn á bankabók með 10% vöxtum. Eftir ár áttu 110.000 krónur. Nafnávöxtun er því 10.000 krónur.

Á þessu ári var verðbólga 5% sem dregst frá nafnávöxtuninni. Formúlan til að reikna hana út er nafnávöxtun deilt með verðbólgu - sem gefur í þessu tilfelli 4,76. Það þýðir að 100.000 krónurnar hafa vaxtið í verðmæti um 4,76% eða um 4.760 krónur.


Gengi

Einföld leið til að átta sig á ávöxtun eignasafns í Eign - 50/50 er að skoða gengisþróun síðustu ára. Gengi fjárfestingarleiðarinnar (áður Framtíðarsýn 1) hefur þróast með eftirfarandi hætti frá árinu 1999.

Fjárfestingastefna

Á hveru ári er unnin ítarleg fjárfestingarstefna fyrir Eign - 50/50. Í þeirri vinnu er meðal annars lagt mat á í hvaða eignaflokkum eru tækifæri til góðrar ávöxtunar og hvar eru hættumerki.

Sérfræðingar Gildis í eignastýringu eru stöðugt að kaupa og selja hluta- og skuldabréf til að tryggja sjóðfélögum sem besta ávöxtun. Ramminn utan um þá vinnu er settur í fjárfestingastefnu sem finna má í töflunni hér fyrir neðan. Þar má einnig finna upplýsingar um eignasamsetningu fjárfestingaleiðarinnar í árslok 2024.

Verðbréfaflokkur Eignir 31.12.2025 Stefna 2026 Heimilað frávik - lágmark Heimilað frávik - hámark
Skuldabréf 66,5% 65,0% 55,0% 75,0%
- Innlán og laust fé 6,0% 1,0% 0,0% 15,0%
- Skuldabréf með ábyrgð ríkisins 18,3% 19,0% 10,0% 65,0%
- Skuldabréf fjármálafyrirtækja 17,8% 18,0% 0,0% 26,0%
- Veðskuldabréf 0,0% 0,0% 0,0% 10,0%
- Skuldabréf sveitarfélaga 5,5% 6,0% 0,0% 10,0%
- Skuldabréf fyrirtækja 16,1% 17,0% 0,0% 24,0%
- Erlend skuldabréf 2,8% 4,0% 0,0% 15,0%
Hlutabréf 33,5% 35,0% 25,0% 45,0%
- Innlend hlutabréf 15,0% 15,0% 0,0% 25,0%
- Erlend hlutabréf 18,5% 20,0% 10,0% 40,0%
Samtals 100% 100%   

Lykilupplýsingar:

Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign - 50/50hjá Gildi-lífeyrissjóði. Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.