Eign - 20/80

Í Eign - 20 / 80 eru 20% eigna ávaxtaðar í hlutabréfum og 80% í skuldabréfum. Leiðin hentar þeim sem vilja trygga ávöxtun með takmarkaðri áhættu.

Vakin er athygli á ávöxtunarleiðin hét áður Framtíðarsýn 2 en nafninu var breytt í Eign - 20/80 um mitt ár 2026.

Ávöxtun

Þegar séreign er ávöxtuð í jafnvel áratugi, þarf að horfa sérstaklega vel á ávöxtun yfir lengra tímabil. Þar þarf einnig að hafa í huga mun á raunávöxtun og nafnávöxtun.

Nafnávöxtun sýnir hversu mikið eign hefur vaxið í krónum án tillits til verðbólgu eða kostnaðar. Raunávöxtun er nafnávöxtun þegar búið er að leiðrétta fyrir verðbólgu og kostnaði. Hún sýnir þá hækkun á raunvirði.

Munur á raun- og nafnávöxtun (dæmi):

Þú átt 100.000 krónur og leggur inn á bankabók með 10% vöxtum. Eftir ár áttu 110.000 krónur. Nafnávöxtun er því 10.000 krónur.

Á þessu ári var verðbólga 5% sem dregst frá nafnávöxtuninni. Formúlan til að reikna hana út er nafnávöxtun deilt með verðbólgu - sem gefur í þessu tilfelli 4,76. Það þýðir að 100.000 krónurnar hafa vaxtið í verðmæti um 4,76% eða um 4.760 krónur.

Gengi

Einföld leið til að átta sig á ávöxtun eignasafns í Eign - 20/80 er að skoða gengisþróun síðustu ára. Gengi fjárfestingarleiðarinnar (áður Framtíðarsýn 2) hefur þróast með eftirfarandi hætti frá árinu 1999.


Fjárfestingastefna

Á hveru ári er unnin ítarleg fjárfestingarstefna fyrir Eign - 20/80. Í þeirri vinnu er meðal annars lagt mat á í hvaða eignaflokkum eru tækifæri til góðrar ávöxtunar og hvar eru hættumerki.

Sérfræðingar Gildis í eignastýringu eru stöðugt að kaupa og selja hluta- og skuldabréf til að tryggja sjóðfélögum sem besta ávöxtun. Ramminn utan um þá vinnu er settur í fjárfestingastefnu sem finna má í töflunni hér fyrir neðan. Þar má einnig finna upplýsingar um eignasamsetningu fjárfestingaleiðarinnar í árslok 2025.

Verðbréfaflokkur Eignir 31.12.2025 Stefna 2026 Heimilað frávik - lágmark Heimilað frávik - hámark
Skuldabréf 80,5% 80,0% 70,0% 90,0%
- Innlán og laust fé 2,5% 1,0% 0,0% 15,0%
- Skuldabréf með ábyrgð ríkisins 22,6% 22,0% 15,0% 80,0%
- Skuldabréf fjármálafyrirtækja 22,8% 23,0% 0,0% 32,0%
- Veðskuldabréf 0,0% 0,0% 0,0% 10,0%
- Skuldabréf sveitarfélaga 8,1% 8,0% 0,0% 12,0%
- Skuldabréf fyrirtækja 20,6% 21,0% 0,0% 30,0%
- Erlend skuldabréf 3,7% 5,0% 0,0% 15,0%
Hlutabréf 19,5% 20,0% 10,0% 30,0%
- Innlend hlutabréf 8,4% 9,0% 0,0% 20,0%
- Erlend hlutabréf 11,1% 11,0% 5,0% 25,0%
Samtals 100% 100%


Lykilupplýsingar:

Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign - 20/80 hjá Gildi-lífeyrissjóði.

Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.