Hrein eign Framtíðarsýnar 3 nam tæplega 2,3 milljörðum króna í árslok 2024. Eignir deildarinnar þróuðust með eftirfarandi hætti á árinu 2024 (í milljónum króna).
Hér fyrir neðan má finna helstu upplýsingar um ávöxtun, eignasamsetningu og fjárfestingastefnu Framtíðarsýnar 3.
Ítarlegar upplýsingar má finna í ársskýrslum sjóðsins sem hægt er að nálgast hér.
Hrein nafnávöxtun Framtíðarsýnar 3 var 6,0% á árinu 2024 eða sem nemur 1,2% hreinni raunávöxtun. Fimm ára meðalraunávöxtun nemur nú 0,3% en 1,1% sé horft til síðustu tíu ára.
Eignir safnsins eru eingöngu í verðtryggðum innlánum sem takmarkar sveiflur í ávöxtun milli ára.
Stefna 2025 | Hámark |
---|---|
100% |
Eignir Framtíðarsýnar 3 eru eingöngu í verðtryggðum innlánum