Hrein eign Framtíðarsýnar 2 nam rúmlega 3,5 milljörðum króna í árslok 2023. Eignir deildarinnar þróuðust með eftirfarandi hætti á árinu 2023 (í milljónum króna).



Hér fyrir neðan má finna helstu upplýsingar um ávöxtun, eignasamsetningu og fjárfestingastefnu Framtíðarsýnar 2.

Ítarlegar upplýsingar má finna í ársskýrslum sjóðsins sem hægt er að nálgast hér.

Hrein nafnávöxtun Framtíðarsýnar 2 á árinu 2023 var 5,3% eða sem nemur -2,5% hreinni raunávöxtun. Fimm ára meðalraunávöxtun nemur nú 1,1% en 2,8% sé horft til síðustu tíu ára.

Ávöxtun Framtíðarsýnar 2

Nafnávöxtun eignaflokka Framtíðarsýnar 2 á árinu 2023


Samkvæmt fjárfestingarstefnu Framtíðarsýnar 2 eru 20% safnsins að jafnaði í hlutabréfum og 80% í skuldabréfum. Með hærra hlutfalli skuldabréfa má gera ráð fyrir minni sveiflum í ávöxtun en vænt ávöxtun er að sama skapi einhverju lægri til lengri tíma litið.

Eignir þann 30.9.2023 Stefna 2024 Heimilað frávik - lágmark Heimilað frávik - hámark
Skuldabréf 74,2% 80,0% 70,0% 90,0%
- Innlán 1,0% 1,0% 0,0% 15,0%
- Skuldabréf með ábyrgð ríkisins 23,3% 24,0% 15,0% 80,0%
- Skuldabréf banka og sparisjóða 22,8% 23,0% 0,0% 32,0%
- Veðskuldabréf 0,0% 0,0% 0,0% 10,0%
- Skuldabréf sveitarfélaga 7,8% 8,0% 0,0% 12,0%
- Skuldabréf fyrirtækja 19,1% 22,0% 0,0% 30,0%
- Erlend skuldabréf 0,2% 2,0% 0,0% 15,0%
Hlutabréf 25,8% 20,0% 10,0% 30,0%
- Innlend hlutabréf 12,8% 9,0% 0,0% 20,0%
- Erlend hlutabréf 12,9% 11,0% 5,0% 25,0%
Samtals 100% 100%   

Verðbréfasafn Framtíðarsýnar 2 samanstendur af fjölda eigna sem skiptast í eftirfarandi flokka í árslok 2023.

Eignaflokkar