Eignir og Fjárfestingar

Gildi er leiðandi fjárfestir á íslenskum markaði og leggur áherslu á fagleg vinnubrögð og víðtæka upplýsingagjöf. Sjóðurinn lítur meðal annars til umhverfismála, félagslegra málefna og stjórnarhátta í fjárfestingum.

Ársskýrslur Gildis

Í ársskýrslum Gildis eru veittar ítarlegar upplýsingar um stöðu, ávöxtun og starfsemi sjóðsins. Skýrslurnar eru gefnar út árlega í aðdraganda ársfundar.

arsskyrsla 1
Hluthafastefna (svg)

Skýrsla um framkvæmd hluthafastefnu

Gildi-lífeyrissjóður birtir hér ítarlega samantekt um framkvæmd hluthafastefnu sjóðsins og hvernig Gildi beitir sér sem hluthafi í skráðum félögum.

Eignarsamsetning

Eignir, ávöxtun og fjárfestingarstefna

Eignasafni Gildis er stýrt í samræmi við fjárfestingarstefnu sjóðsins hverju sinni, með það að markmiði að ná fram ákjósanlegri áhættudreifingu og ávöxtun til langs tíma. Áherslur Gildis sem leiðandi fjárfestis á íslenskum markaði eru m.a. aðgengilegar í hluthafastefnu sjóðsins og stefnu um ábyrgar fjárfestingar.

GIL-Eignir og fjarfestingar-0125
Sjálfbærni (svg)

Upplýsingagjöf um sjálfbærni

Fjárhagsleg áhætta sem tengist sjálfbærni er mismikil eftir fjárfestingarkostum og hefur mismikið vægi. Fjárhagsleg áhætta tengd sjálfbærni er hluti af mati á fjárfestingarkostum en kemur þó ekki í veg fyrir að Gildi fjárfesti þar sem áhætta vegna sjálfbærni er til staðar.