2. október 2026

Séreign inn á húsnæðislán – úrræðið hefur tekið gildi á ný

Ný lög um nýtingu séreignarsparnaðar til að greiða skattfrjálst inn á höfuðstól húsnæðislána tóku gildi 1. október 2026. Með lögunum er úrræðið, sem margir þekkja og hafa nýtt sér undanfarin ár, framlengt. Heimilt er að nýta úrræðið í samtals allt að 10 ár. Þau sem hafa nýtt það áður en eiga eftir ónýttan tíma geta því sótt um aftur. Þau sem hafa þegar fullnýtt 10 árin eiga ekki frekari rétt samkvæmt úrræðinu.

Sótt er um hjá Skattinum, sem vinnur nú að því að ljúka nýju umsóknarferli. Gert er ráð fyrir að umsókn verði aðgengileg á þjónustuvef Skattsins í byrjun október.

Gott er að hafa í huga að umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilda fyrir greiðslur allt árið, eða frá 1. janúar 2026. Umsóknir sem berast síðar gilda frá og með umsóknarmánuði. Það er því nægur tími til stefnu, en þau sem vilja nýta inngreiðslur ársins að fullu ættu að sækja um fyrir 1. desember.

Úrræðið fyrir kaup á fyrstu íbúð er áfram opið.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Skattsins.