Stjórnir Gildis-lífeyrissjóðs og Festu lífeyrissjóðs hafa samþykkt samning um sameiningu lífeyrissjóðanna og var samningurinn undirritaður í dag. Samningurinn verður lagður fyrir aukaársfundi beggja sjóða til staðfestingar í byrjun nóvember nk. Aukaársfundur Festu er áætlaður miðvikudaginn 4. nóvember nk. og aukaársfundur Gildis fimmtudaginn 5. nóvember. Fundirnir verða boðaðir formlega síðar í samræmi við samþykktir sjóðanna.
Gangi sameiningin eftir verður til sjóður, sá næststærsti á landinu, með um 1.600 milljarða króna í eignum miðað við stöðu sjóðanna í árslok 2025. Sameinaður sjóður verður jafnframt sá fjölmennasti á landinu en samtals eiga um 285 þúsund sjóðfélagar réttindi hjá Gildi og um 116 þúsund hjá Festu.
Formlegar viðræður um mögulega sameiningu Gildis og Festu hófust í byrjun júní. Sameiginlegt mat stjórna sjóðanna er að sameiningin geti skapað margvíslegan ávinning fyrir sjóðfélaga beggja sjóða. Ávinningurinn felst meðal annars í aukinni stærðarhagkvæmni, sterkari rekstrargrundvelli, öflugri þjónustu við sjóðfélaga og auknum burðum til tæknilegrar og stafrænnar þróunar. Að mati stjórna sjóðanna getur sameiningin skapað betri forsendur til langtímaávöxtunar og styrkt getu sameinaðs sjóðs til að tryggja hagsmuni og þjónustu við sjóðfélaga til framtíðar.
Sjóðirnir eru um margt sambærilegir, meðal annars hvað varðar sjóðfélagahópa, réttindakerfi og tryggingafræðilegar forsendur. Þessi líkindi skapa hagstæð skilyrði fyrir farsæla samþættingu og auka líkur á að sá ávinningur sem stefnt er að með sameiningunni skili sér til sjóðfélaga.
Fyrir hönd Gildis undirrituðu samninginn Perla Ösp Ásgeirsdóttir, formaður stjórnar, og Bjarnheiður Hallsdóttir stjórnarmaður. Fyrir hönd Festu undirrituðu samninginn þau Silja Eyrún Steingrímsdóttir, formaður stjórnar og Halldór Kristinsson varaformaður. Viðstaddir voru einnig Davíð Rúdólfsson framkvæmdastjóri Gildis og Gylfi Jónasson framkvæmdastjóri Festu.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar skrifað var undir samrunasamninginn fyrr í dag.