Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs var haldinn klukkan 17:00 í gær, þriðjudaginn 21. apríl á Hótel Reykjavík Grand.
Á fundinum kom fram að heildareignir Gildis í árslok 2025 námu ríflega 1.225 milljörðum króna og jukust um ríflega 98 milljarða milli ára. Nafnávöxtun samtryggingardeildar Gildis nam 7,1% á árinu 2025 og hrein raunávöxtun var 3,3%. Tryggingafræðileg staða sjóðsins var neikvæð um 1,8% í árslok 2025 og versnaði um 0,6 prósentustig milli ára.
Hægt er að kynna sér upplýsingar um rekstur sjóðsins, ávöxtun og eignir í ítarlegum ársreikningi og ársskýrslu fyrir árið 2025, sem lögð voru fram og kynnt á fundinum.
Fyrirliggjandi tillögur um breytingar á samþykktum voru kynntar á fundinum og samþykktar í kjölfarið. Hægt er að kynna sér breytingar á samþykktum, ársskýrslu, ársreikning og önnur fundargögn á ársfundarsíðu. Þar má einnig finna kynningarglærur frummælenda.
Á fundinum kynnti Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri Gildis, fyrirhugaðar breytingar á séreignardeild sjóðsins, þar sem fjárfestingarleiðum verður fjölgað og vöruframboð bætt. Nýjar leiðir, sem verða innleiddar hjá sjóðnum á næstu mánuðum, eru eftirfarandi:
Sjóðurinn mun þannig á næstunni bjóða upp á fleiri leiðir til ávöxtunar séreignasparnaðar. Boðið verður m.a. upp á nýja leið með hærra hlutfall hlutabréfa en verið hefur hjá sjóðnum hingað til, þ.e. 70% hlutabréf og 30% skuldabréf. Þá verður jafnframt boðið upp á nýja fjárfestingarleið þar sem allt eignasafnið verður fjárfest í erlendri mynt. Einnig mun sjóðurinn bjóða upp á aldurstengda leið, þar sem sjóðfélagar flytjast sjálfvirkt á milli fjárfestingarleiða eftir aldri.
Eftirtaldir fulltrúar voru kosnir eða skipaðir í stjórn Gildis á fundinum til ársfundar 2028.
Fulltrúar aðildarfélaga launamanna:
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins:
Af hálfu stéttarfélaga var Árni Bjarnason kosinn varmaður í stjórn og Jakob E. Jakobsson var skipuð varamaður í stjórn af hálfu Samtaka atvinnulífsins.
Eftir ársfundinn er stjórn sjóðsins þannig skipuð:
Varamenn í stjórn:
Þá voru Gunnar Jónsson og Íris Hannah Atladóttir skipuð af SA í launanefnd sjóðsins. Af hálfu launamanna var Þórir Jóhannesson kosinn en ásamt honum á stjórnarformaður Gildis sæti í nefndinni.
Á fundinum var starfskjarastefna sjóðsins staðfest en engar breytingar voru gerðar á henni milli ára. Einnig var fyrirliggjandi tillaga um laun stjórnarmanna samþykkt. Staðfest var að Deloitte ehf. verður áfram endurskoðandi sjóðsins og Helgi Friðjón Arnarson var kosinn utanaðkomandi aðili í endurskoðunar- og áhættunefnd.



Myndir: Marinó Flóvent