11. júní 2026

Gildi og Festa hefja sameiningarviðræður

Stjórnir Gildis-lífeyrissjóðs og Festu lífeyrissjóðs hafa ákveðið að hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Í viðræðunum verður m.a. skoðað hvort sameining sé hagfelldur kostur fyrir sjóðfélaga beggja sjóða sem og hvort sameining geti skilað sér í aukinni stærðarhagkvæmni, bættri þjónustu og enn öflugri sjóði til framtíðar.

Fyrir liggur að sjóðirnir eru líkir að eðli og uppbyggingu, meðal annars með mjög sambærilegt réttindakerfi og samþykktir.

Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næst stærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs.

Stjórnir Gildis-lífeyrissjóðs og Festu lífeyrissjóðs