Gildi kynnir nú nýtt og aukið vöruúrval í séreignarsparnaði undir heitinu Eign. Hjá sjóðnum verða í boði fimm fjárfestingarleiðir sem gera sjóðfélögum kleift að velja á milli ólíkra leiða eftir væntri ávöxtun, áhættu, fyrirhuguðum fjárfestingartíma og áherslum í eignastýringu. Allar fjárfestingarleiðir sjóðsins eru í boði fyrir bæði séreignarsparnað og tilgreinda séreign.
Meðal nýjunga eru Eign – Erlend, þar sem eignasafnið er að fullu ávaxtað í erlendri mynt, Eign – 70/30, þar sem 70% eignasafnsins eru ávöxtuð í hlutabréfum, auk sjálfvirkrar aldurstengdrar leiðar, Eign – Aldurstengd, þar sem inneign sjóðfélaga er flutt sjálfkrafa milli fjárfestingarleiða eftir aldri sjóðfélaga.
Fleiri valkostir og skýrari samanburður
Nýju fjárfestingarleiðirnar taka formlega gildi 1. september og er breytingunum ætlað að fjölga þeim kostum sem standa sjóðfélögum Gildis til boða og auðvelda þeim valið. Samhliða þessu verður heitum núverandi fjárfestingarleiða breytt og þær samræmdar undir heitinu Eign, þannig að nöfn þeirra endurspegli betur eignasamsetningu hverrar leiðar. Framtíðarsýn 1 fær heitið Eign – 50/50 og verður fjárfestingarstefnu leiðarinnar jafnframt breytt þannig að um helmingur eignasafnsins verði að jafnaði í hlutabréfum og helmingur í skuldabréfum.
Breytingar á vöruframboði séreignarleiða Gildis og á heitum fjárfestingarleiða má sjá hér:
Sérstaklega horft til yngri og erlendra sjóðfélaga
Markmiðið með fyrirhuguðum breytingunum er m.a. að bregðast við þörfum yngri sjóðfélaga og erlendra sjóðfélaga og fjölga valkostum í séreignarsparnaði með t.d. auknu vægi hlutabréfa og auknu vægi erlendra eigna frá því sem verið hefur. Þannig getur ný leið sjóðsins, Eign – 70/30, sem fjárfestir almennt 70% eigna í hlutabréfum og 30% í skuldabréfum, t.d. hentað yngri sjóðfélögum sem sjá fyrir sér að ávaxta inneign sína til lengri tíma. Eign – Erlend er hins vegar hugsuð fyrir erlenda sjóðfélaga Gildis og aðra þá sem hafa áhuga á að séreignasparnaður þeirra sé alfarið fjárfestur í erlendum eignum.
Þá býður sjóðurinn nú jafnframt upp á annan nýjan valmöguleika, Eign – Aldurstengd, sem er hentugur kostur fyrir þá sem vilja að samsetning séreignasparnaðar taki sjálfkrafa mið af aldri þeirra þannig að hlutfall hlutabréfa lækki og hlutfall skuldabréfa aukist eftir því sem sjóðfélagi eldist. Þeir sem velja þá leið eru þannig færðir á milli leiðanna Eign – 70/30, Eign – 50/50 og Eign – 20/80 eftir skilgreindum aldursbilum.
Mikilvægt að vanda valið og huga að kostnaði
Breytingarnar sem taka gildi 1. september hafa verið í undirbúningi undanfarna mánuði og voru meðal annars kynntar á ársfundi sjóðsins í apríl. Eitt af markmiðum þeirra er að bregðast við þeirri þróun sem starfsfólk Gildis hefur orðið vart við, að sjóðfélögum séu í sumum tilvikum boðnar sparnaðarleiðir sem henta ekki þörfum þeirra eða aðstæðum.
Sjóðfélagar eru því hvattir til að vanda val sitt á fjárfestingarleiðum fyrir séreignarsparnað og kynna sér vel vænta ávöxtun, áhættustig, kostnað og aðra skilmála. Dæmi eru um sparnaðarleiðir sem fela í sér há upphafsgjöld eða verulega hærri viðvarandi kostnað en þær leiðir sem Gildi býður upp á. Þá eru einnig dæmi um sparnaðarleiðir þar sem kostnaðarsamt er að flytja sparnað milli fjárfestingarleiða. Slíkir þættir geta haft veruleg áhrif á ávöxtun, uppbyggingu sparnaðar og sveigjanleika til lengri tíma.
Við breytingarnar á séreignarsparnaði Gildis var sérstök áhersla lögð á að efla vöruframboðið í samræmi við ólíkar þarfir sjóðfélaga. Sjóðurinn leggur jafnframt áherslu á lágt kostnaðarhlutfall í öllum fjárfestingarleiðum sínum og innheimtir engin upphafsgjöld.
Hægt er að kynna sér nýjar leiðir hér en það tekur aðeins nokkrar mínútur að skrá sig í séreign hjá Gildi á „mínum síðum“ sjóðsins.