17. apríl 2026

Ársskýrsla Gildis 2025 komin út

Ársskýrsla Gildis fyrir árið 2025 hefur nú verið birt á vef sjóðsins. Í skýrslunni er að finna ítarlegt yfirlit yfir starfsemi, rekstur og ávöxtun á liðnu ári.

Skýrslan skiptist í eftirfarandi kafla:

  • Sjóðfélagar
  • Starfsemi Gildis
  • Verðbréfamarkaðir
  • Samtryggingardeild
  • Séreignardeild
  • Sjálfbærniupplýsingar

Sjóðfélagar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér efni skýrslunnar og fá þannig betri innsýn í starfsemi sjóðsins.

Í síðasta mánuði var ársreikningur Gildis birtur á vefnum. Bæði ritin verða kynnt á ársfundi sjóðsins sem fer fram þriðjudaginn 21. apríl kl. 17:00 á Hótel Reykjavík Grand. Fundurinn er öllum opinn og eru sjóðfélagar hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um málefni sjóðsins.

Nánari upplýsingar um ársfundinn, þar á meðal fundargögn, má finna á vef Gildis.


Forsíðu ársskýrslunnar prýða myndir af sjóðfélögum Gildis sem teknar eru af ljósmyndaranum Marinó Flóvent.

Ársskýrsla Gildis 2025 - forsíða