Eign - aldurstengd

Eign - Aldurstengd er tilvalin fyrir þá sem vilja tryggja að þeir séu alltaf í þeirri fjárfestingarleið sem hentar þeim.

Þú færist milli fjárfestingarleiða eftir aldri út frá ráðleggingum helstu sérfræðinga sjóðsins. Með því er tryggt að þín Eign er alltaf á réttum stað.


Svona virkar Eign - Aldurstengd

Í Eign - Aldurstengd færist þú milli fjárfestingarleiða eftir aldri. Fram til 48 ára aldurs er inneign þín ávöxtuð í Eign - 70/30 en í henni liggja 70% eigna í hlutabréfum og 30% í skuldabréfum.

Eftir því sem þú eldist færist áhersla frá hlutabréfum og yfir á skuldabréf. Þegar þú nærð 58 ára aldri er inneign þín ávöxtuð þannig að 20% eru í hlutabréfum en 80% í skuldabréfum.

Ástæðan fyrir þessu er að þegar fjármunir eru ávaxtaðir yfir langan tíma er ráðlagt að vera með hátt hlutfall eigna bundið í hlutabréfum. Þar eru sveiflur í ávöxtun miklar en langtímaávöxtun hærri en í öðrum eignarflokkum.

Þegar líður á ævina og það styttist í úttekt á þinni Eign er ráðlagt að minnka áhersluna á hlutabréf og auka áherslu á skuldabréf. Þar eru sveiflur minni og vænt ávöxtun ennþá góð.