9. október 2026

Upplýsingasíða um fyrirhugaða sameiningu Gildis og Festu

Gildi og Festa hafa opnað sameiginlega upplýsingasíðu á www.gildiogfesta.is um fyrirhugaða sameiningu sjóðanna. Þar geta sjóðfélagar og fulltrúaráð beggja sjóða kynnt sér helstu atriði sameiningarinnar á einum stað.

Á síðunni er meðal annars fjallað um markmið og áætlaðan ávinning sameiningarinnar, hvernig hún mun fara fram og fyrirhugaða tímalínu. Sjóðfélagar, lífeyrisþegar og launagreiðendur geta á síðunni valið sinn sjóð og séð hvað sameiningin þýðir fyrir þá. Þar er einnig að finna svör við algengum spurningum. Samrunasamningurinn, tillögur að breyttum samþykktum fyrir sameinaðan sjóð og önnur gögn tengd sameiningunni eru jafnframt aðgengileg á síðunni.

Tillaga um sameiningu verður lögð fyrir aukaársfund Festu miðvikudaginn 4. nóvember kl. 18:00 og aukaársfund Gildis fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17:00. Báðir fundirnir verða haldnir á Grand Hótel Reykjavík og þeim verður einnig streymt.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér málið á www.gildiogfesta.is í aðdraganda fundanna.

Til baka í fréttir