27. október 2025

Sjóðfélagafundur Gildis 12. nóvember 2025

Gildi-lífeyrissjóður stendur fyrir opnum sjóðfélaga- og fulltrúaráðsfundi miðvikudaginn 12. nóvember klukkan 17.00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Staða og starfsemi Gildis á árinu 2025.
  • Áform stjórnvalda um afnám jöfnunarframlags og áhrif þess á sjóðfélaga Gildis.
  • Önnur mál.

Fundinum verður streymt á vef Gildis.

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um stöðu og framtíð lífeyrissjóðsins.