18. mars 2010
Ábyrgð sjóðfélaga vegna breytinga á tekjuskatti.
Um síðustu áramót tóku gildi breytingar á lögum um tekjuskatt og staðgreiðslu sem fela í sér þrepakerfi á tekjuskatti.
Tekjuskattur, að viðbættu 13,12% útsvari er sem hér segir: 37,22% af tekjum undir 200.000 kr. á mánuði. 40,12% af tekjum á bilinu 200.001 til 650.000 kr. á mánuði 46,12% af tekjum yfir 650.000 kr. á mánuði.
Við viljum benda sjóðfélögum á, að sá sem fær launagreiðslur frá fleiri launagreiðendum en lífeyrissjóðum, ber ábyrgð á að rétt innheimtuhlutfall sé notað við frádrátt staðgreiðslu.