Eign – Erlend

Einstaklingur spjallar við glugga á kaffihúsi á meðan strætó ekur hjá

Í Eign – Erlend er allt eignasafnið ávaxtað í erlendri mynt.

Um 60% eignanna er ávaxtaður í erlendum hlutabréfum og 40% í erlendum skuldabréfum.

Sækja um séreign hjá Gildi

Eign - Erlend er ný fjárfestingarleið hjá Gildi þannig að upplýsingar um ávöxtun liggja ekki fyrir.

Fjárfestingastefna

Á hveru ári er unnin ítarleg fjárfestingarstefna fyrir Eign – Erlend. Í þeirri vinnu er meðal annars lagt mat á í hvaða eignaflokkum eru tækifæri til góðrar ávöxtunar og hvar eru hættumerki.

Sérfræðingar Gildis í eignastýringu eru stöðugt að kaupa og selja hluta- og skuldabréf til að tryggja sjóðfélögum sem besta ávöxtun. Ramminn utan um þá vinnu er settur í fjárfestingarstefnu sem finna má í töflunni hér fyrir neðan.

VerðbréfaflokkurStefnaHeimilað frávik - lágmarkHeimilað frávik - hámark
Skuldabréf40,0%20,0%50,0%
- Innlán og laust fé1,0%0,0%15,0%
- Erlend skuldabréf39,0%20,0%50,0%
Hlutabréf60,0%50,0%70,0%
- Erlend hlutabréf60,0%50,0%70,0%

Lykilupplýsingar:

Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign – Erlend hjá Gildi-lífeyrissjóði. Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.

Lykilupplýsingablað: Eign – Erlend