Eign – 20/80

Í Eign – 20/80 eru 20% eigna ávaxtaðar í hlutabréfum og 80% í skuldabréfum. Leiðin hentar þeim sem vilja trygga ávöxtun með takmarkaðri áhættu.
Vakin er athygli á ávöxtunarleiðin hét áður Framtíðarsýn 2 en nafninu var breytt í Eign - 20/80 um mitt ár 2026.
Ávöxtun
Þegar séreign er ávöxtuð í jafnvel áratugi, þarf að horfa sérstaklega vel á ávöxtun yfir lengra tímabil. Þar þarf einnig að hafa í huga mun á raunávöxtun og nafnávöxtun.
Nafnávöxtun sýnir hversu mikið eign hefur vaxið í krónum án tillits til verðbólgu eða kostnaðar. Raunávöxtun er nafnávöxtun þegar búið er að leiðrétta fyrir verðbólgu og kostnaði. Hún sýnir þá hækkun á raunvirði.
Síðustu 12 mánuði
5,0%
3 ára meðaltal
7,2%
5 ára meðaltal
4,1%
Hrein nafn- og raunávöxtun Eignar – 20/80.
Munur á raun- og nafnávöxtun (dæmi):
Þú átt 100.000 krónur og leggur inn á bankabók með 10% vöxtum. Eftir ár áttu 110.000 krónur. Nafnávöxtun er því 10.000 krónur.
Á þessu ári var verðbólga 5% sem dregst frá nafnávöxtuninni. Formúlan til að reikna hana út er nafnávöxtun deilt með verðbólgu - sem gefur í þessu tilfelli 4,76. Það þýðir að 100.000 krónurnar hafa vaxtið í verðmæti um 4,76% eða um 4.760 krónur.
Gengi
Einföld leið til að átta sig á ávöxtun eignasafns í Eign – 20/80 er að skoða gengisþróun síðustu ára. Gengi fjárfestingarleiðarinnar (áður Framtíðarsýn 2) hefur þróast með eftirfarandi hætti frá árinu 1999.
Fjárfestingastefna
Á hveru ári er unnin ítarleg fjárfestingarstefna fyrir Eign – 20/80. Í þeirri vinnu er meðal annars lagt mat á í hvaða eignaflokkum eru tækifæri til góðrar ávöxtunar og hvar eru hættumerki.
Sérfræðingar Gildis í eignastýringu eru stöðugt að kaupa og selja hluta- og skuldabréf til að tryggja sjóðfélögum sem besta ávöxtun. Ramminn utan um þá vinnu er settur í fjárfestingarstefnu sem finna má í töflunni hér fyrir neðan. Þar má einnig finna upplýsingar um eignasamsetningu fjárfestingaleiðarinnar í árslok 2025.
| Verðbréfaflokkur | Eignir 31.12.2025 | Stefna 2026 | Heimilað frávik - lágmark | Heimilað frávik - hámark |
|---|---|---|---|---|
| Skuldabréf | 80,5% | 80,0% | 70,0% | 90,0% |
| - Innlán og laust fé | 2,5% | 1,0% | 0,0% | 15,0% |
| - Skuldabréf með ábyrgð ríkisins | 22,6% | 22,0% | 15,0% | 80,0% |
| - Skuldabréf fjármálafyrirtækja | 22,8% | 23,0% | 0,0% | 32,0% |
| - Veðskuldabréf | 0,0% | 0,0% | 0,0% | 10,0% |
| - Skuldabréf sveitarfélaga | 8,1% | 8,0% | 0,0% | 12,0% |
| - Skuldabréf fyrirtækja | 20,6% | 21,0% | 0,0% | 30,0% |
| - Erlend skuldabréf | 3,7% | 5,0% | 0,0% | 15,0% |
| Hlutabréf | 19,5% | 20,0% | 10,0% | 30,0% |
| - Innlend hlutabréf | 8,4% | 9,0% | 0,0% | 20,0% |
| - Erlend hlutabréf | 11,1% | 11,0% | 5,0% | 25,0% |
| Samtals | 100% | 100% |
Lykilupplýsingar:
Eftirfarandi skjal veitir þér lykilupplýsingar um fjárfestingarleiðina Eign – 20/80 hjá Gildi-lífeyrissjóði.
Upplýsingarnar eru lögboðnar og markmið þeirra er að auðvelda þér að skilja eðli, áhættu, kostnað og mögulegan hagnað og tap af fjárfestingarleiðunum og bera þær saman við aðrar sambærilegar afurðir.
Lykilupplýsingablað: Eign – 20/80