6. nóvember 2026
Samruni Gildis og Festu samþykktur

Aukaársfundur Gildis var haldinn á Hótel Grand Reykjavík klukkan 17:00 fimmtudaginn. 5. nóvember.
Samruni Gildis-lífeyrissjóðs og Festu lífeyrissjóðs var samþykktur á aukaársfundi Gildis sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 5. nóvember. Aukaársfundur Festu hafði samþykkt samrunann degi áður, miðvikudaginn 4. nóvember.
Næststærsti lífeyrissjóður landsins
Að óbreyttu munu sjóðirnir því renna saman 1. janúar 2027 undir nafni Gildis. Sameiningin er þó háð heimild frá Samkeppniseftirlitinu, auk þess sem samþykktabreytingar vegna sameiningarinnar þurfa staðfestingu fjármála- og efnahagsráðherra að fenginni umsögn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Sameinaður sjóður verður sá fjölmennasti á landinu og sá næststærsti að eignum miðað við stöðu sjóðanna í árslok 2025, þegar sameiginleg hrein eign sjóðanna nam um 1.570 milljörðum króna.
„Við erum afar ánægð með niðurstöðuna enda horfum við til þess að sameinaður sjóður verði sterkari og öflugri, með stærra eignasafn sem skapar betri forsendur fyrir góða ávöxtun til lengri tíma. Sjóðfélagar beggja sjóða munu njóta ávinningsins þegar fram í sækir, bæði með hagkvæmari rekstri og með auknu þjónustustigi. Við áætlum að kostnaðarsamlegð vegna sameiningarinnar geti numið allt að 1,2 milljörðum króna á ári þegar hún hefur náðst að fullu,“ segir Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri Gildis.
Hrein eign jókst um 38 milljarða
Á aukaársfundi Gildis í gær kom fram að hrein eign sjóðsins jókst um 38,3 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og nam 1.263,5 milljörðum króna í lok september. Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar var 2,3% á tímabilinu, sem samsvarar 3,1% neikvæðri raunávöxtun.
Árið hefur farið erfiðlega af stað á hlutabréfamörkuðum, sérstaklega hér heima, og styrking krónunnar hefur dregið úr ávöxtun erlendra eigna sjóðsins. Neikvæð gjaldmiðlaáhrif námu þannig um 22 milljörðum króna á tímabilinu. Innlend skuldabréf og veðskuldabréf skiluðu hins vegar jákvæðri ávöxtun, og sama á við um erlend hlutabréf.
Lífeyrisgreiðslur sjóðsins námu 30,5 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og jukust um 8,8% frá sama tímabili í fyrra. Mest jukust greiðslur ellilífeyris, eða um 11%. Móttekin iðgjöld námu 41,7 milljörðum króna og jukust um 5,6% milli ára.
Nýtt lánaframboð fyrirhugað á næstunni
Á fundinum var kynnt nýtt fyrirhugað lánaframboð sjóðsins sem áætlað er að taki gildi síðar á árinu. Vextir nýrra lána verða fastir til þriggja ára og breytilegir að þeim tíma loknum. Sjóðfélagar munu geta valið á milli verðtryggðra og óverðtryggðra lána. Hámark almennra lána mun samhliða breytingunum hækka úr 75 í 95 milljónir króna. Jafnframt mun sjóðurinn bjóða upp á nýjan valmöguleika fyrir fyrstu kaupendur. Fyrstu kaupendum mun þannig standa til boða sérstök viðbótarlán hjá sjóðnum fyrir allt að 85% af verðmæti eignar. Sjóðurinn mun greina nánar frá hinu nýja lánaframboði á komandi vikum.


Um fundinn
Perla Ösp Ásgeirsdóttir, stjórnarformaður Gildis, setti fundinn. Davíð Rúdólfsson framkvæmdastjóri fór yfir starfsemi sjóðsins á árinu og kynnti samrunasamninginn og skipulag sameinaðs sjóðs, Árni Hrafn Gunnarsson, forstöðumaður lögfræðisviðs, fór yfir breytingar á samþykktum og Benedikt Jóhannesson tryggingastærðfræðingur fór yfir tryggingafræðileg áhrif sameiningarinnar. Fundarstjóri var Guðbjörg Helga Hjartardóttir, lögmaður hjá LOGOS.
Kosið var rafrænt á fundinum og var honum einnig streymt.
Hægt er að nálgast kynningarglærur fundarins hér á vef sjóðsins og upplýsingar um sameininguna á gildiogfesta.is.

Um 80 manns sátu aukaársfund Gildis 2026.