7. nóvember 2022

Breytilegir vextir hækka 12. desember

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að hækka breytilega vexti sjóðfélagalána um 20 punkta frá og með 12. desember næstkomandi.

Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána verða eftir hækkunina 6,90% og viðbótarlána 7,65%.

Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána verða 2,00% og viðbótarlána 2,75%.

Fastir vextir verðtryggðra lána taka ekki breytingum.

Frá og með 12. desember mun vaxtatafla sjóðsins líta svona út:

Grunnlán (allt að 65% veðhlutfall)Viðbótarlán (65-75% veðhlutfall)
Verðtryggt - fastir vextir2,80%3,55%
Verðtryggt - breytilegir vextir2,00%2,75%
Óverðtryggt - breytilegir vextir6,90%7,65%
Til baka í fréttir