17. mars 2026

Ávöxtun Gildis á árinu 2025

  • Hrein eign: 1.225.144 m.kr.
  • Fjárfestingartekjur: 81.413 m.kr.
  • Iðgjöld: 56.307 m.kr.
  • Lífeyrir: 37.530 m.kr.
  • Fjöldi sjóðfélaga: 286 þúsund

Uppgjör Gildis-lífeyrissjóðs vegna ársins 2025 liggur nú fyrir en hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar var 7,1% og raunávöxtun var 3,3%. Enn fremur var ávöxtun allra fjárfestingaleiða sjóðsins jákvæð:

Hrein nafnávöxtun Hrein raunávöxtun
Samtryggingardeild 7,1% 3,3%
Framtíðarsýn 1 5,9% 2,1%
Framtíðarsýn 2 6,8% 3,0%
Framtíðarsýn 3 5,3% 1,6%

Hrein eign Gildis í árslok 2025 nam samtals 1.225.144 milljónum króna og jókst um 98.491 m.kr. á milli ára. Ef langtímaávöxtun samtryggingardeildar er skoðuð kemur m.a. í ljós að 10 ára meðalraunávöxtun nemur 3,8% og 30 ára ávöxtun nemur 4,0%.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í auglýsingu Gildis um afkomu sjóðsins á árinu 2025 sem birtist í dagblöðum landsins þessi dægrin. Auglýsinguna má sjá neðar í fréttinni en hún er einnig aðgengileg hér: Gildi-lífeyrissjóður: Starfsemi á árinu 2025

Samtryggingadeild - hrein raunávöxtun

Eignir samtryggingar og séreignar

Hrein eign samtryggingardeildar til greiðslu lífeyris nam 1.213.632 m.kr. í árslok 2025 og hækkaði á árinu um 97.076 m.kr. Tryggingafræðileg staða sjóðsins, sem sýnir getu samtryggingadeildar til að standa við skuldbindingar sínar var -1,8% í árslok 2025 samanborið við -1,2% árið áður. Hrein eign séreignardeildar nam 9.721 m.kr. í árslok 2025 og tilgreindrar séreignardeildar 1.790 m.kr.

Sveiflukennt ár á fjármálamörkuðum

Hreinar fjárfestingartekjur sjóðsins voru 81.413 m.kr. á árinu 2025 samanborið við 119.873 m.kr. árið áður. Árið 2025 var nokkuð sveiflukennt á eignamörkuðum og litaðist verulega af pólitískum hræringum erlendis. Styrking krónu gagnvart bandaríkjadollar kom niður á ávöxtun erlendra eignaflokka sem flestir báru þó góða ávöxtun í heimamynt. Bestri ávöxtun skiluðu innlend og erlend skuldabréf en skráð innlent hlutabréfasafn sjóðsins fylgdi þar fast á eftir.

Um sjóðinn

Gildi er fjölmennasti lífeyrissjóður landsins þar sem ríflega 285 þúsund sjóðfélagar áttu réttindi í lok árs 2025. Rúmlega 8.600 launagreiðendur greiddu iðgjöld til Gildis fyrir rúmlega 59.000 sjóðfélaga á síðasta ári. Lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga á árinu 2025 námu alls 37.180 m.kr., en voru 34.536 m.kr. árið 2025. Rekstrarkostnaður sjóðsins nam 1.700 m.kr. á árinu 2025 en var 1.648 m.kr. árið áður. Kostnaðarhlutfall sjóðsins, þ.e. rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðalstöðu eigna, var 0,14% á árinu saman borið við 0,15% á árinu 2024.

Ársfundur 21. apríl

Ársfundur Gildis verður haldinn klukkan 17:00, þriðjudaginn 21. apríl næstkomandi á Hótel Reykjavík Grand, en þar verður m.a. farið yfir afkomu sjóðsins á árinu 2025. Fundinum verður streymt á heimasíðu sjóðsins. Dagskrá fundarins og nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar.

Auglýsing - Starfsemi Gidis á árinu 2025