24. mars 2026

Ársreikningur Gildis 2025 er kominn út

Ársreikningur Gildis-lífeyrissjóðs fyrir árið 2025 er kominn út. Í honum má finna ítarlegar upplýsingar um ávöxtun sjóðsins, rekstur hans og eignasafn í árslok 2025 sem og þróun frá fyrra ári.

Þetta er í annað skipti sem ársreikningur Gildis er birtur stakur, þ.e. ekki sem hluti af ársskýrslu. Það, ásamt breyttu verklagi við uppgjör, gefur sjóðnum tækifæri á að birta reikninginn mun fyrr en áður hafði verið mögulegt. Ársskýrsla sjóðsins er í vinnslu og verður gefin út í aðdraganda ársfundar Gildis sem fram fer á Hótel Reykjavík Grand þriðjudaginn 21. apríl klukkan 17:00.

Ársreikningur Gildis 2025 telur alls 95 blaðsíður og er honum skipt upp í eftirfarandi hluta:

  • Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
  • Stjórnarháttaryfirlýsing
  • Áritun endurskoðanda
  • Efnahagsreikningur, sjóðstreymisyfirlit, tryggingafræðileg staða og breytingar á hreinni eign
  • Skýringar
  • Kennitölur

Aftast í reikningnum má finna helstu upplýsingar um stöðu og rekstur sjóðsins á ensku.

Ársreikningur Gildis 2025 - forsíða