Helstu upplýsingar
| Gildi - lífeyrissjóður | L200 |
| Séreignarsjóður Gildis | X201 |
| Bankareikningur | 0526-26-999 |
| Kennitala sjóðsins | 561195-2779 |
| Gjalddagi iðgjalda | 10. dagur næsta mánaðar |
| Eindagi iðgjalda | Síðasti virki dagur þess mánaðar |
| Faxnúmer iðgjaldadeildar | 515 4701 |
| Faxnúmer lánadeildar | 515 4702 |
Gildi - lífeyrissjóður er aðili að Landssamtökum lífeyrissjóða.
Heimilisfang er: Sætún 1, 105 Reykjavík
Sími: 515-4700
Faxnúmer er: 515-4701
Lífeyrissjóður
Iðgjald til lífeyrissjóðsins frá 1. janúar 2007 er 12% af heildarlaunum, þ.e. tekjum af dagvinnu, eftirvinnu, næturvinnu, álagsgreiðslum og orlofi. Sjóðfélagar á aldrinum 16 - 70 ára greiða 4% af öllum launum sínum til sjóðsins og atvinnurekendur 8%.
Launagreiðanda ber að halda eftir iðgjöldum starfsmanna sinna og standa skil á þeim mánaðarlega ásamt eigin iðgjaldahluta. Gjalddagi iðgjalda hvers mánaðar er 10. næsta mánaðar. Eigi greiðsla sér ekki stað innan þess mánaðar, skal innheimta þá vanskilavexti sem Seðlabanki Íslands heimilar innlánsstofnunum að taka hæsta frá gjalddaga til greiðsludags.
Greiðslur í sjóðinn hefjast þegar launþegi hefur náð 16 ára aldri (í næsta mánuði eftir afmælismánuð). Þegar sjóðfélagi nær 70 ára aldri hættir hann að greiða iðgjald til sjóðsins (síðast greitt í afmælismánuði), enda aflar hann sér ekki lífeyrisréttinda eftir þann tíma.
Stéttarfélög
Gildi - lífeyrissjóður hefur tekið að sér innheimtu fyrir eftirtalin stéttarfélög:
| Félag | Númer - félags | Félags- gjald | Sjúkra- og orlofssjóður | Starfsmenntunar- sjóður |
| Efling - stéttarfélag | 112 | 0,7% | 1,25% | 0,20% |
| Verkalýðsfélagið Hlíf | 115 | 1,0% | 1,25% | 0,20% |
| Félag hársnyrtisveina | 467 | 0,9% | 1,25% | 0,40% |
Atvinnurekendum er skylt að halda eftir af launum starfsmanns félagsgjaldi hans til viðkomandi stéttarfélags skv. þeim reglum sem kjarasamningar greina.
Atvinnurekendum er einnig skylt að greiða í sjúkra- og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélaga.
Endurhæfingarsjóður
Gildi – lífeyrissjóður hefur gert samning við Endurhæfingarsjóð kt. 440608-0510 um að lífeyrissjóðurinn taki að sé innheimtu á mánaðarlegu framlagi atvinnurekenda í Endurhæfingarsjóð á sínu starfssvæði. Samkvæmt kjarasamningi ASÍ/SA frá 17. febrúar 2008, er framlag atvinnurekenda í sjóðinn 0,13% af heildarlaunum starfsmanns frá 1. júní 2008. Innheimta þessa gjalds mun fylgja hefðbundnu innheimtuferli lífeyrissjóðsiðgjalda.
Til athugunar
Launagreiðendum er skylt að senda sjóðnum skilagreinar um iðgjöldin. Launagreiðendum og sjálfstæðum atvinnurekendum ber að tilkynna lífeyrissjóðnum ef þeim ber ekki lengur að standa skil á lífeyrisiðgjaldi þar sem þeir hafa hætt starfsemi eða launþegar þeirra hafa látið af störfum.










