Tímabundin útgreiðsla séreignarsparnaðar.
Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 17. september s.l. var heimild til sérstakrar úttektar séreignarsparnaðar aukin úr 5.000.000 kr. í 6.250.000 kr. Heimild til aukinnar úttektar tók gildi 1. október og er úttektartímabilið allt að 15 mánuðir.
Sækja þarf um úttekt samkvæmt heimild þessari fyrir 1. október 2012.
Í þessu samhengi er vert að vekja athygli á kostum séreignarsparnaðar umfram önnur sparnaðarform, m.a. vegna mótframlags atvinnurekanda og hagstæðrar skattlagningar. Einnig viljum við benda á að þeir sem eru komnir í veruleg fjárhagsvandræði, skyldu hafa hugfast að viðbótarlífeyrissparnaður er ekki aðfararhæfur.
Nánari upplýsingar um sérstaka heimild til úttektar séreignarsparnaðar:
• Heimilt er að greiða út til sjóðfélaga allt að 6.250.000 kr. á 15 mánuðum eða 416.677 kr. á mánuði fyrir skatt. Útgreiðslutíminn styttist hlutfallslega ef um lægri fjárhæð en 6.250.000 kr. er að ræða.
• Inneignin sem hægt er að taka út miðast við stöðuna 1. janúar 2012, þó aldrei hærri upphæð en 6.250.000 kr.
• Sérstök heimild til úttektar séreignarsparnaðar nær ekki til greiðslna sem berast í sjóðinn eftir 1. janúar 2012.
• Greiðslur sem greiddar hafa verið samkvæmt eldri heimildum dragast frá heildarfjárhæð sem heimilt er að greiða út.
• Þeir sem þegar hafa sótt um útgreiðslu séreignarsparnaðar samkvæmt eldri heimild og vilja gera breytingar í samræmi við nýja heimild þurfa að sækja um breytt greiðslufyrirkomulag með nýrri umsókn.
• Eingöngu er hægt að taka út hjá einum vörsluaðila í einu.
• Greiddur er tekjuskattur af fjárhæðinni.
• Það er á ábyrgð sjóðfélaga að upplýsa sjóðinn um í hvaða skattþrepi skattgreiðsla á að vera.
• Útgreiðslur séreignarsparnaðar skulu hefjast eigi síðar en einum mánuði eftir að fullnægjandi umsókn berst vörsluaðila og greiðast mánaðarlega.
• Heimild til úttektar gildir til 1. október 2012 þ.e. síðasti dagur til þess að sækja um útgreiðslu er 30. september 2012.
• Síðasti útgreiðslumánuður skv. heimildinni er janúar 2014.
• Sjóðfélagi getur afturkallað beiðni um útborgun á útgreiðslutímabilinu
• Útgreiðslan skerðir hvorki barnabætur, vaxtabætur né atvinnuleysisbætur.
Greiðslutilhögun:
• Greitt er úr séreignardeild fyrsta virka dag hvers mánaðar. T.d. 1. apríl v/marsmánaðar.
• Umsókn þarf að berast fyrir 20. til að greiðsla berist fyrsta dag næsta mánaðar.
• Skila þarf inn skriflegri umsókn um útgreiðslu sem nálgast má hér að neðan.
Athugið að hægt er að fylla út eyðublaðið á skjánum og prenta það út.
Til að opna skjalið þarf að hafa Adobe reader. Ef þú hefur hann ekki getur þú nálgast hann hérna.











