Erfðir og greiðslur við fráfall
Inneign í Séreignarsjóði Gildis erfist samkvæmt erfðalögum og er það ólíkt því sem gerist í sameignarsjóði. Þetta er vegna þess að reikningurinn er í raun sérreikningur þess sem sparar.
Útborgun séreignarsparnaðar við fráfall sjóðfélaga fer eftir samþykktum sjóðsins, grein 23.9.
Reglurnar eru eftirfarandi:
- Við andlát sjóðfélaga öðlast erfingjar hans rétt til innistæðunnar eftir reglum erfðalaga.
- Börnum sjóðfélaga undir 13 ára aldri skal úthlutað þeim hluta innistæðunnar, sem þeim ber, með jöfnum greiðslum á þeim árum sem vantar á að viðkomandi barn verði 18 ára.
- Hafi barn náð 13 ára aldri við andlát sjóðfélaga skal hlutur þess greiddur út á 5 árum.
Hlut eftirlifandi maka ber að skipta með jöfnum greiðslum á sjö ár. Greiðslum skal þó lokið fyrir 67 ára aldur maka, hafi hann ekki þegar náð honum við andlát sjóðfélaga. - Láti sjóðfélagi ekki eftir sig börn eða maka, skal innistæðan renna til dánarbús rétthafa án takmarkana, sjá 2. msl. 2. mgr. 8. gr. laga nr.129/1997.










