Hvaða framtíðarsýn hefur þú?
Þrjár mismunandi ávöxtunarleiðir standa sjóðfélögum til boða. Samspil ávöxtunar og áhættu, ásamt mismunandi þörfum sjóðfélaga, er það sem haft er í huga við uppbyggingu verðbréfasafnanna.
Framtíðarsýn 1
Þetta safn er samsett þannig að 65% safnsins er í skuldabréfum og 35% í hlutabréfum. Þegar stór hluti safnsins er bundinn í hlutabréfum má búast við sveiflum í ávöxtun og þá í takt við sveiflur á hlutabréfamörkuðum. Þetta safn hentar betur þeim sem yngri eru enda kemur ekki til úttektar sparnaðar fyrr en áratugum síðar og því er auðveldara fyrir þann hóp að taka sveiflum sem eðlilega fylgja áhættumeiri bréfum um leið og vænta má betri ávöxtunar.
Framtíðarsýn 2
Safn sem hugsað er fyrir þann aldurshóp sem á styttri tíma eftir á vinnumarkaði. Þá fer stöðugleikinn í ávöxtun að skipta máli enda á sá aldurshópur erfiðara með að taka þeim sveiflum sem fylgja áhættumeiri verðbréfum. Þetta safn er þannig samsett að 80% þess eru í skuldabréfum en einungis 20% í hlutabréfum.
Framtíðarsýn 3
Þriðja ávöxtunarleiðin er bundinn innlánsreikningur sem er hugsaður fyrir þann aldurshóp sem á lítinn tíma eftir á vinnumarkaði og styttist í að fari að fá útgreiðslur úr sjóðnum. Þessi leið er áhættuminnst af þeim sem eru í boði.










