Ávinningur af séreignarsparnaði er ótvíræður
- Hagstæðasta sparnaðarformið.
- Meira ráðstöfunarfé á efri árum.
- Mótframlag atvinnurekanda sem annars tapast.
- Hægt er að hefja töku lífeyris fyrr, hætta að vinna fyrr.
- Umsamin launahækkun sem annars tapast.
Töflurnar hér að neðan sýna greinilega hver ávinningurinn er af því að greiða í séreignarsparnað. Miðað er við einstakling sem hefur 100.000,- kr. í laun og greiðir 2% og fær 2% í mótframlag. Gert er ráð fyrir 5% raunávöxtun.
| Árafjöldi | Höfuðstóll | Mánaðargr. í 7 ár |
|---|---|---|
| 20 ár | 1.704.400 | 24.000 |
| 30 ár | 3.424.600 | 48.200 |
| 40 ár | 6.226.600 | 87.700 |










