• Polska
  • Oplysninger på Dansk
  • Information in English
  • Minnka texta
  • Stækka texta

Grundvöllur lífeyrisréttinda

Aldurstengd réttindi

Réttindi sjóðfélaga til lífeyris eru reiknuð í krónum og ráðast réttindi af því iðgjaldi sem greitt er í lífeyrissjóðinn hverju sinni.

Þannig fá yngri sjóðfélagar meiri réttindi en eldri sjóðfélagar fyrir sama iðgjald, því iðgjaldið er verðmætara eftir því sem það ávaxtast lengur í sjóðnum.  Aldurstenging réttindanna tryggir jafnræði sjóðfélaga í réttindaávinnslu yfir starfsævina.

  Árleg lífeyrisréttindi fyrir hvert 10 þúsunda króna iðgjald
 Lífeyris Lífeyris- Lífeyris-
AldurréttindiAldurréttindiAldurréttindi
  163.108  341.421  52 961
  173.004  351.375  53 948
  182.882  361.332  54 937
  192.739  371.293  55 925
  202.602  381.257  56 913
  212.474  391.223  57 901
  222.354  401.193  58 889
  232.243  411.164  59 877
  242.138  421.138  60 866
  252.041  431.115  61 853
  261.950  441.093  62 839
  271.865  451.072  63 825
  281.787  461.053  64 810
  291.714  471.035  65 795
  301.646  481.018  66 774
  311.582  491.002  67
  321.525  50  987  68
  331.471  51  973  69

(Miðast við vísitölu neysluverðs 230,0 stig)

Jöfn réttindi

Réttur til að greiða iðgjald í jafna réttindaávinnslu miðast við 10% af launum ársins 2003 fært til verðlags í dag.

Sjóðfélagar sem voru 25 ára og eldri þann 1. júní 2005 þegar Gildi - lífeyrissjóður hóf starfsemi sína og áttu réttindi í sjóðnum í árslok 2004, er heimilt að greiða iðgjald í jafna réttindaávinnslu, allt að tilteknu hámarki (viðmiðunariðgjaldi), í jafn marga mánuðiog viðkomandi hafði greitt iðgjöld til sjóðsins fyrir 42 ára aldur í árslok 2004.  Hafi sjóðfélagi hins vegar greitt iðgjöld lengur en 5 ár á umræddu tímabili á hann rétt á að greiða allt að viðmiðunariðgjaldi í jafna réttindaávinnslu til 70 ára aldurs.

Iðgjald sjóðfélaga frá og með 1. júní 2005 sem færist í jafna réttindaávinnslu, sovkallað viðmiðunariðgjald, getur hæst orðið jafnhátt 10% iðgjaldi sjóðfélagans vegna ársins 2003 fært til verðlags í dag eða síðasta almanaksárið þar á undan sem iðgjald barst sjóðnum hans vegna.  Iðgjald umfram verðbætt viðmiðunariðgjald færist í aldurstengda ávinnslu.

Lífeyrir almannatrygginga

Almannatryggingar greiða elli-, örorku-, maka- og barnalífeyri eins og lífeyrissjóðirnir.  Þó er sá munur á að lífeyrir almannatrygginga er ekki háður tekjum á starfsævinni heldur eingöngu búsetu í landinu og ekki eru greidd iðgjöld beint til almannatrygginga heldur eru lífeyrisgreiðslur þeirra fjármagnaðar úr ríkissjóði. 

Heimasíða Tryggingastofnunarinnar

Handbók Tryggingastofnunar - 1. kafli Lífeyristryggingar
Almennar upplýsingar um vinnureglur Tryggingastofnunar og lögin sem hún starfar eftir.



Sjóðsfélagi - skoðaðu yfirlitið þitt
Launagreiðendur - Yfirlit og skráningar
Gott að vita - Fræðsluvefur Landssamtaka lífeyrissjóða