Gildi – lífeyrissjóður býður sjóðfélögum sem eru í hættu með að lenda í greiðsluerfiðleikum með lán sín hjá sjóðnum upp á eftirfarandi úrræði til lausnar:
Greiðslujöfnun
• Samþykkt hefur verið frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga. Samkvæmt lögum þessum er öllum heimilt að greiða af lánum sínum með nýrri vísitölu greiðslujöfnunarvísitölu sem reiknuð er mánaðarlega og mun að öllum líkindum hækka minna en neysluvísitalan sem lánin miðast við. Mismunurinn á þessum vísitölum mun leggjast við höfuðstólinn og koma síðar til greiðslu.
Skilmálabreytingar
• Að vanskil verði lögð við höfuðstól
• Lánstími verði lengdur í allt að 40 ár frá útgáfu skuldabréfsins.
• Gjalddögum verði fækkað eða fjölgað.
• Breytt verði úr jöfnum afborgunum í jafnar greiðslur.
• Heimilt verði tímabundið að greiða eingöngu vexti.
Frysting lána
• Boðið er upp á 6-12 mánaða „frystingu“ lána þ.e. tímabundna ívilnun með breytingu á lánaskilmálum.
Varðandi allar nánari upplýsingar um úrræði þessi vísast til starfsmanna sjóðsins.










