• Polska
  • Oplysninger på Dansk
  • Information in English
  • Minnka texta
  • Stækka texta

 

Vinsamlegast athugið að skilagreinar iðgjalda eru ekki aðgengilegar á vefnum eins og er. 

 

Skilagreinar er hægt að fá á skrifstofu sjóðsins, en við bendum á launagreiðendavef okkar.

Launagreiðendavefurinn býður upp á einföldun við iðgjaldaskil og þægilegt aðgengi að upplýsingum um eldri færslur. Í skilagreinakerfi eru t.d. auknar villuprófanir sem einfalda útfyllingu og ættu að tryggja enn öruggari skil en áður. Þá fylgir einnig sú nýjung að hægt er að mynda kröfu í banka um leið og skilagreinin er send til sjóðsins. Í yfirliti fást síðan ítarlegar upplýsingar um eldri skilagreinar og greiðslustöðu.

Til að komast inn á launagreiðendavefinn, vinsamlegast ýtið á bláa hnappinn til hægri á síðunni.  Þar er hæt er að sækja um aðgang að vefnum undir liðnum innskráning. Sláðu inn kennitöluna þína og veflykill verður sendur í heimabanka þinn.  

Þeir launagreiðendur sem ekki hafa heimabanka geta fengið veflykil sendann í pósti með því að óska eftir því við starfsmann Gildis - lífeyrissjóðs í síma 515-4700 eða senda tölvupóst með upplýsingum til gildi@gildi.is

 



Sjóðsfélagi - skoðaðu yfirlitið þitt
Launagreiðendur - Yfirlit og skráningar
Gott að vita - Fræðsluvefur Landssamtaka lífeyrissjóða