• Polska
  • Oplysninger på Dansk
  • Information in English
  • Minnka texta
  • Stækka texta

Reglur um endurgreiðslur iðgjalda til erlendra ríkisborgara

 

Heimilt er að endurgreiða iðgjöld skv. lögum og samþykktum Gildis - lífeyrissjóðs.

4. mgr. 19. gr. laga nr. 129/1997:

Heimilt er að endurgreiða iðgjöld til erlendra ríkisborgara þegar þeir flytjast úr landi enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningi sem Ísland er aðili að. Óheimilt er að takmarka endurgreiðsluna við tiltekinn hluta iðgjaldsins nema á tryggingafræðilega réttum forsendum.

16.1. gr. samþykkta Gildis - lífeyrissjóðs 01.07.2009:

Heimilt er að endurgreiða iðgjöld til erlendra ríkisborgara, þegar þeir flytjast úr landi, enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningum, sem Ísland er aðili að. Heimilt er að draga frá endurgreiddu iðgjaldi að viðbættum vöxtum kostnað vegna tryggingaverndar, sem sjóðfélaginn hefur notið, og kostnað vegna umsýslu samkvæmt mati tryggingafræðings. Óheimilt er að endurgreiða iðgjöld ríkisborgara annarra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Við endurgreiðslu til sjóðfélaga samkvæmt þessari grein falla niður allar kröfur viðkomandi sjóðfélaga á hendur sjóðnum vegna hinna endurgreiddu iðgjalda.
 

  • Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Afrit af vegabréfi
Afrit af farseðli frá Íslandi
Afrit af síðasta launaseðli
Staðfesting launagreiðanda á starfslokum

  • Óheimilt er að endurgreiða iðgjöld ríkisborgara innan EES svæðisins.

EES löndin eru:

Austurríki
Belgía
Bretland
Búlgaría
Danmörk
Eistland
Finnland
Frakkland
Grikkland
Holland
Írland
Ísland
Ítalía
Kýpur (gríski hlutinn)
Lettland
Liechtenstein
Litháen
Lúxemborg
Malta
Noregur
Portúgal
Pólland
Rúmenía
Slóvakía
Slóvenía
Spánn
Svíþjóð
Tékkland
Ungverjaland
Þýskaland

  • Sjóðfélagi með tvöfalt ríkisfang og annað innan EES svæðisins á ekki rétt á endurgreiðslu iðgjalda.
  • Sjóðfélagi sem var með ríkisfang innan EES svæðisins þegar iðgjöld bárust á ekki rétt á endurgreiðslu iðgjalda.
  • Endurgreidd eru 80% iðgjalda auk verðbóta og 3,5% ársvaxta að frádregnum staðgreiðsluskatti.
  • Greitt er inn á íslenskan bankareikning sjóðfélaga sjálfs.



Sjóðsfélagi - skoðaðu yfirlitið þitt
Launagreiðendur - Yfirlit og skráningar
Gott að vita - Fræðsluvefur Landssamtaka lífeyrissjóða